FRÉTTIR

Steiniðjan kaupir S Helgason ehf

Steiniðjan ehf. hefur keypt S. Helgason ehf. sem er stærsta steinsmiðja landsins. Helstu vörur félagsins eru borðplötur, flísar, legsteinar og ýmis sérsmíði.

Fram kemur í tilkynningu, að S.Helgason hafi starfað á sömu kennitölu allt frá stofnun félagsins árið 1953. Félagið hefur verið í eigu SPB hf., áður Sparisjóðabanka Íslands hf., frá því í febrúar 2010.

SPB auglýsti S.Helgason til sölu og var söluferill opinn áhugasömum aðilum. Segir í tilkynningunni, að fjölmargir hafi sýnt félaginu áhuga en tilboð Steiniðjunnar hafi verið hagstæðast.

Steiniðjan er fjölskyldufyrirtæki, sem stofnað var 1972.