Granít
Harðasta steintegundin en með faglegri slípun má ná háu gljástigi. Granítið er fallegt efni sem þolir að heitir hlutir (suðuhiti) séu lagðir á flötinn. Algengustu litbrigði eru í svörtu og ljósu en ótal litbrigði eru til.
Meðhöndlun
Borðplötur úr náttúrusteini skal meðhöndla á eftirfarandi máta til að viðhalda fallegri áferð.
- Á allar graníttegundir, ljósar og dökkar, skal bera minnst 3svar sinnum Stain Stop frá Lithofin (sjá leiðbeiningar með efnunum) eftir uppsetningu.
- Notið mild sápuefni í daglegum þrifum t.d náttúrusápu.
Atriði sem ber að varast
- Notið ekki sterk hreinsiefni svo sem salmíak- eða kemísk efni á granítið.
- Varast skal að láta safa úr sítrónum og lime ávöxtum, liggja á yfirborði graníts. Þessi efni innihalda sýrur sem æta upp granítið. Eins skal varast að láta rauðvín, appelsín, ávaxtarsafa eða fitu liggja á yfirborðinu.
Stain Stop frá Lithofin fæst í verslun okkar að Skemmuvegi 48, Kópavogi.



















