Marmari
Þykir steina tignarlegastur og hefur í gegnum aldirnar verið notaður í hallir, kastala, óðalssetur og opinberar byggingar. Marmarinn er mjúkur og auðunninn og er til í margvíslegum litbrigðum, þótt algengastur sé hann hvítur með svörtum eða gráum æðum.
Meðhöndlun
Borðplötur úr marmara skal meðhöndla á eftirfarandi máta til að viðhalda fallegri áferð.
- Á allar marmarategundir, ljósar og dökkar, skal bera minnst 3svar sinnum Stain Stop frá Lithofin (sjá leiðbeiningar með efnunum) eftir uppsetningu.
- Notið mild sápuefni í daglegum þrifum t.d náttúrusápu.
Atriði sem ber að varast
- Notið ekki sterk hreinsiefni svo sem salmíak- eða kemísk efni á marmarann.
- Varast skal að láta safa úr sítrónum og lime ávöxtum, liggja á yfirborði marmara. Þessi efni innihalda sýrur sem æta upp marmarann. Eins skal varast að láta rauðvín, appelsín, ávaxtarsafa eða fitu liggja á yfirborðinu.
Stain Stop frá Lithofin fæst í verslun okkar að Skemmuvegi 48, Kópavogi.








