Duftsteinn

Sögu líkbrennslu má rekja til fyrri hluta steinaldar þ.e.a.s. 3000 f.Kr., en hvarvetna á Norðurlöndum voru bálfarir þekktar á víkingaöld.  Bálfarir nútímans eiga rætur aftur til miðrar 19. aldar þegar fullgerður líkbrennsluofn var sýndur á heimssýningunni í Vín árið 1873.

Fyrsta bálstofan í Evrópu var byggð 1878 í Englandi og á sama tíma í Þýskalandi.  Hlutfall bálfara á Íslandi hefur aukist mikið og var um 25% af tölu útfara árið 2000 á höfðuborgarsvæðinu, en á öllu landinu um 12 %.  Fyrsta bálför Íslandi fór fram árið 1948.

Duftgrafreitir eru minni en venjuleg grafstæði og þar af leiðandi duftsteinar líka, en fer það eftir reglum kirkjugarða á hverjum stað.