Marmari
Haft var eftir myndhöggvaranum Bertil Thorvaldsen að leirinn sé lífið, gifsið dauðinn en marmarinn upprisan. Því veldur mjúk áferð marmara og litfegurð, enda hefur hann verið eftirsóttur til bygginga og höggmyndagerðar frá örófi alda.
Marmari er myndbreyttur kalksteinn, til orðinn við hitun og umkristöllun kalkskelja (CaCO3) ýmissa fornra sjávardýra. Kornastærðin vex með myndbreytingarstigi og í fínkorna marmara má oft sjá einstaka steingervinga. "Óhreinindi" í kalksetinu koma fram í mismunandi litbrigðum marmara.
